Um Dagvita
Dagviti er einfalt yfirlit yfir hátíðis- og merkisdaga á Íslandi: lögbundna frídaga, fánadaga, gömlu misseradagana og aðra daga sem gott er að muna eftir. Vefurinn sýnir hvenær hvern dag ber upp, hvers vegna hann er haldinn og hvenær hann kemur næst.
Nafnið dagviti er gamalt íslenskt orð yfir dagatal - nánar tiltekið dagatal sem sýnir mánuð, mánaðardag og vikudag og nota má ár eftir ár. Orðið má líka lesa sem viti sem lýsir upp daginn - og þaðan kemur merkið okkar.
Svo er þriðja lesningin: eins og hálfviti, nema öfugt. Dagviti er sá sem þykist vita allt um dagana - hvenær þeir eru, af hverju þeir heita þetta og hvort þeir séu frí. Við göngumst fúslega við því.
Hér er enginn algóritmi og engar auglýsingar, bara dagarnir í réttri röð, á lista eða í dagatali.
Gögnin
Hreyfanlegir dagar eru reiknaðir eftir sömu reglum og í almanökum: páskar eftir kirkjuárinu, sumardagurinn fyrsti sem fyrsti fimmtudagur eftir 18. apríl, bóndadagur sem upphaf þorra og svo framvegis. Finnir þú villu máttu endilega láta vita á hallo@dagviti.is.
Persónuvernd
Dagviti notar hvorki vafrakökur né safnar persónuupplýsingum. Ef mælingar eru virkar eru þær nafnlausar og án auðkenna.